Kaffihús og lærdómur!!!
Allt á hvolfi í verkefnavinnu þessa dagana!! Samt nóg um að vera. Bridgemenn að létu allt í einu sjá sig og halda allt í einu að bridge sé eitthvað flott!! En það er s.s. fínt, Skólafélagið á heilmiklar Bridgegræjur og einusinni var alltaf keppt í bridge innan skólans, vonandi verður það aftur!! Skákmenn eru eitthvað feimnir en það hljót allir að sjá það að það er mun meira cool "sport"!!?? Hannes Hlífar, Margeir Pétursson og Jóhann Hjartarson, þetta eru alvöru gæjar!!
Annars er töluvert búið að ræða könnunina sem er hér á síðunni!! Flestir hafa kosið að það sé gott að færa djammið yfir á föstudaga. Svan að rugla er ekki beint sammála og heldur því fram að aðeijns eldri borgarar og gamalmenni sæki síðuna mín?!?!
Hvet þig til að kjósa!!
Annars er helgin aftur að nálgast! Fimmtudagur það er. Vísindaferð, salsapartý og ball á döfinni!!
Svo er stofnun UMFBIF á næsta þriðjudag!!
Tuesday, October 29, 2002
Monday, October 28, 2002
Mikið búinn að vera að spá í "föstudagsveiki" Bifrestinga!! Var að spjalla við kennara um daginn sem tjáði mér það að enginn vilji kenna á föstudögum vegna lélegrar mætingar og andleysis nemenda!! Hvernig er það með aðra skóla? Getur maður alltaf mætt þunnur á föstudögum? Mikið hefur verið deilt á rektor á spjallsvæðum nemenda m.a. spjallsvæði Skólafélagsins um að hann vilji ráða öllu og stjórna útivistartíma nemenda eins og hjá grunnskólabörnum. Einnig hafa heyrst háværar raddir fjölskyldufólks og nágranna Kaffihússins að lætin í kringum fimmtudagsjömm Bifrestinga séu ekki eðlileg miðað við að "skemmtistaðurinn" sé í miðri íbúðabyggð. Síðan kom bréf frá rekstraraðilum Kaffihússins að stytta þyrfti opnunartíma kaffihússins enn frekar þrátt fyrir ákvæði í útboðslýsingu.
En hvað er til ráða? Munu Bifrestingar halda áfram að jamma á fimmtudögum, eða á Bifröst eftir að breytast úr draugabæ um helgar í eðlilegt þorp þar sem jammað er um helgar. Hvað myndi gerast ef partýin yrðu öll sett á föstudaga? Fólk gæti þá verið hér aðfaranótt föstudags og farið svo heim til sín á laugardögum? Fimmtudagar yrðu þá meiri kaffihúsastemning, einn og einn bjór en ekki eftirpartý til 6 og læti!!
Veit ekki? Er bara að spá? Nenna þeir sem ekki eiga fjölskyldu að vera hérna um helgar? Í dag fara allir strax eftir fyrirlestur á fös.!??! Væri ekki eðlilegra að vinna fram á laug og koma frekar beint í fyrirlestur á mán?? Hafðu skoðun og taktu þátt í könnuninni!!
Geimhundurinn Laika lifði mun skemur en talið hefur verið segirMBL. Nýjar upplýsingar gefa til kynna að hún hafi látið lífið af völdum ofhitnunar og ofsahræðslu nokkrum klukkustundum eftir geimskot. Þetta er grimmur heimur!!
Saturday, October 26, 2002
Var að renna yfir Svan að rugla og fann eina fyndnustu sögu sem ég hef heyrt lengi!! Þvílíkur húmor!! Honum er nett saman!! Ég tek hér það fyndnasta úr ferð hans til Egilsstaða, Lesið þetta!
"Ferðin til baka var áhugaverðari heldur en ferðin til Egilstaða. Ég lenti í afar skemmtilegu rifrildi við ókunnuga konu sem sat fyrir aftan mig. Hún var klædd pels og lítill feitur strákur var við hliðina á henni með ótrúlega mikið af nammi með sér. Málið var að ég var að reyna að sofa en krakkafíflið sem var með henni (ég held að þetta hafi verið barnabarn frekar en sonur hennar) söng á barnamáli og ætlaði ekkert að stoppa. Og það ekkert smá hátt. Eftir örvæntingafulla tilraun til að sofna þá leit ég yfir stólibakið og spurði hana hvort möguleiki væri á að sonur hennar (svona til að vera kurteis, láta hana líða eins og hún sé ungleg) gæti hætt að syngja. Svarið sem ég fékk var nokkuð magnað: "Ef hann vill syngja, þá syngur hann!"
Ég verð að segja að mér brá þónokkuð við þetta svar og einhverjum fimm mínútum seinna talaði ég við flugfreyjuna sem leit út fyrir að vera gáfaðari en hin (ekkert mjög erfitt) og spurði hana hvort hún gæti ekki gert neitt í þessu. Hún snýr sér að konunni og segir að sonur hennar (sama trix og ég notaði) sé að trufla hina farþegana og bað hana kurteisislega að þagga niðrí barninu. Kerlingarskarfurinn var viðskota ill eins og við var að búast og gaf flugfreyjunni nokkurn vegin sama svar og ég hafði fengið áður nema bara á kurteisislegri máta. Flugfreyjan bauð mér að skipta um sæti en ég afþakkaði það þar sem þetta voru einu 2 sætin sem að voru laus hlið við hlið þannig að tilvalið var að sofa í þeim.
Ég hélt áfram að reyna að sofna en tókst það ekki skiljanlega. Ég lá þarna og starði á stólbakið fyrir framan mig og spáði heil lengi hvort ég ætti að gefa eftir og færa mig, en þá hefði ég tapað þessu stríði. Eftir smá stund stóð ég upp og leit beint í augun á konunni og sagði "Veistu það, ég á mér langa sögu ofbeldis og geðtruflanna og svona eitthvað [benti á strákinn] er alveg á mörkunum að fylla mælinn hjá mér og þá á ég mjög erfitt með að hemja mig". Ég sagði þetta ákveðið og alvarlega og reyndi að vera eins trúlegur og hægt var. Hún starði á mig á móti þar til ég sneri mér við og fór að reyna sofna aftur.
Viti menn, mér tókst ætlunarverk mitt og náði að sofna því konan var í sífellu að ussa á krakkann eftir að ég sagði þetta og hafði greinilega miklar áhyggjur af því að ég myndi ráðast á hana og krakkafíflið. Þetta var bara of fyndið. Ég ætlaði mér ekkert að segja þetta þegar ég reisti mig upp til að tala við hana. Ég veit ekkert af hverju mér datt í hug að segja þetta því þetta datt bara úr mér og það fyrsta sem ég spurði mig að eftir að ég sagði þetta var: "Svan, hvað í andsk. var þetta?!?!?"
Þegar ég var að bíða eftir farangrinum mínum á Reykjavíkurflugvelli þá benti konan, sem sat fyrir aftan mig í vélinni, á mig og var að tala við einhverja vinkonu sína og eflaust að segja henni frá því sem gerðist í vélinni. Ég tók farangurinn minn og rölti framhjá þeim og út í bíl og hló þar í rétt tæpar 5 mínútur.
Þetta er dagsatt!"

Friday, October 25, 2002
Thursday, October 24, 2002
Flott maður!! Ekki bjóst ég við þessu!! Hótel Búðir
Vá!! Nick Nolte í svakalegum gír í The Viper Room!!
Villtasta síða sem ég hef séð lengi:UK Fashion For Dogs dogmcuk
Wednesday, October 23, 2002
Frekar fyndið Þekkið þið mennina?? Frumur 2001-2002...
Til hamingju Hari með besta afþreyingarvefinn: Baggalútur
Seriously fyndinn vefur!
Seriously fyndinn vefur!
Besta að blogga svolítið núna og fyla upp í göt síðustu viku....
Fórum í vísindaferð í Kaupþing á föstudaginn, þar tók Nanna skólasystir mín á móti okkur!! Fyndið hvað fólk sem maður hefur ekki séð lengi á allt í einu öðruvísi líf!! Hitti líka Frosta sem vinnur á "gólfinu", Borgnesingur og toppmaður. Hann mætti með veiðifélögum á Hausthátíð og átti undir högg að sækja frá einmanna Bifrestingum, ætli það séu svona ljótir og leiðinlegir strákar á Bifröst!?? Ferðin var góð, 70 manns, full ferð. Eftir ferðina skelltum við okkur á Brennsluna og síðan í partý í Tannlæknasalinn sem Bendt plöggaði. Þvílíkt fyllerý!! Sjaldan lent í öðru eins. Náði þó að vera rólegur enda löng helgi framundan.
Fór á laugardeginum á Kjarvalsstaði , alltaf jafn hrikalega flott hús, og sá sýningu Arne Jacobsen, meistarastykki. Skoðaði líka akitektúrasýninguna Úti er ekki inni - inni er ekki úti , skemmtilegar pælingar en ekki alveg nógu aðgengileg sýning, fashion over function, sem er reyndar í lagi!! Snilld að fara á söfn, sérstaklega Reykjavíkursöfnin, borgar 500 kr. og færð frítt inn á öll söfnin þrjú: Kjarvalsstaði, Hafnarhús og Ásmundarsafn. Söfn eru reyndar furðuleg fyrirbæri... Sjaldan fólk á sveimi, opnunartímar yfirleitt fáránlegir en þvílík hugsun á hverjum vegg... Spurning um að opna listasafn!! i8 er reyndar ágætis tilraun, en það er auðvitað meira sýningarsalur en eitthvað annað og því ekki sama stemning og á söfnum. Skólavörðustígurinn er reyndar að breytast í listamannagötu, frábær þróun. Mamma er með gallerý þar sem heitir Meistari Jakob, frábært gallerý en kannski ekki svakalega commercial, sem betur fer. Listhús Ófeigs í næsta húsi er líka cool!!
En nóg um list og söfn! Á laugardaginum fórum við í hanastél hjá GK. Þau voru búin að flytja inn klæðskera frá Burberry sem var að bjóða fólki að láta klæðskerasauma á sig Burberry's jakkaföt. Snilldar framtak og loksins sá maður alvöru jakkaföt!! Þvílík smáatriði og sérþarfir... Langafi Einar og reyndar líka stundum afi Haraldur létu klæðskerasauma á sig föt. Skil núna why! Reyndar sagði klæðskri Reykjavík Collection mér frábæra sögu af Benjamíni Eiríkssyni hann var einn af þessum sérvitringum sem lét sauma á sig föt með þvílíkum sérþörfum, hann t.d. þurfti að hafa brjóstvasana í sérstakri stærð af því hann braut vasaklútinn sinn saman ólíkt öðrum. Annars las ég ævisöguna hans um daginn, merkileg og góð bók!!
Kvöldið enduðum við svo á NASA sem var ekki jafn mikil stemmning.
Jæja hættur þessu nöldri í bili!! Þetta er allt of langt til að geta talist eðlilegt!!

Er búið að vera vitlaust að gera undanfarið!!! Maður er með allt niðrum sig eins og svo oft áður. Var að lesa Bendt áðan, hann er alltaf fyndin og skemmtilegur, þar kemur í ljós að rektor er duglegur að lesa síður nemenda. Vissi að hann gluggaði í Svan. Persónulega finst mér þetta vera frábært!! Fullkomin leið til að taka púlsinn á nemendum, þó svo að það sé ekki algildur púls!! MÁM, aðstoðarrektor, virðist ekki vera stunda þetta en mætti þó taka þennan (ó)sið upp. Hann skrifaði reyndar frábæran pistil í KREML um daginn sem ég hvet alla sem hafa áhuga á pólitík og komandi kosningum að lesa. Hvers konar lýðræði er þetta?! Skemmtileg pæling!! Hvernig getur meðaljón sem ekki vill vera bundinn einhverri flokslínu boðið sig fram, og þó svo hann væri í flokki!! Sá hinn sami þarf að berjast við sitjandi þingmenn sem kynna sig á fullum launum, dagpeningum og akstursstyrkjum! Vilhjálmur Egilsson semsækist eftir efsta sæti Sjálfstæðismanna hér á Vesturlandi býst við því að leggja fram um 2 milljónir í kosningaslaginn!! Hvað með mig? Hvernig get ég t.d. keppt við svona? Er þetta ekki misbeiting valds og alþingis? Eru þetta talsmenn fólksins, eða eru þetta góðvinir voldugra flokksbræðra?! Frábær pæling!!
Thursday, October 17, 2002
Vöngum velt
Gaman að fá öll þessi bréf um afhverju Skólafélagið rukki inn félagsgjöld!! Eins og heimurinn væri betri ef Skólafélagið væri líknarfélag undir væng skólans, mér þykir líka líklegt að enginn mundi kvarta yfir því að þurfa að borga fyrir rekstur Skólafélags óviljugur!!
Ef ykkur leiðast vangaveltur þá er um að gera að prófa curling

Spáið í snilld!! Hverjum dettur þetta í hug?? Lyklaborð fest á armana á skrifborðsstól!!
Og svo er ég kallaður pera!!! Spáið í að setja þetta á lazy-boy!!

Stórmerkileg frétt!! Maður hefur mikið verið að spá hvernig Finnar stóðu í Rússum í Vetrarstríðinu, nú er lausnin komin!! Týnda stríðið aftur komið í fréttirnar...
Erlent | Morgunblaðið | 18.10.2002 | 11:55
Stalín treysti á rangar upplýsingar
Lélegar leyniþjónustuupplýsingar og ofurtrú Jósefs Stalíns á sinn eigin óskeikulleika áttu stóran þátt í því, að Finnum tókst að ljúka Vetrarstríðinu 1939 til 1940 með friðarsamningum við Sovétríkin.
Kemur þetta fram hjá finnska sagnfræðingnum dr. Kimmo Rentola en hann hefur fundið nýjar upplýsingar um ákvarðanir Sovétstjórnarinnar á þessum tíma í skjalasöfnunum í Kreml.
Rentola, sem skýrði frá þessu á fundi í finnska sagnfræðifélaginu á mánudag, sagði, að leyniþjónustuupplýsingar frá París hefðu gefið Stalín mjög ranga mynd af stöðunni á einum örlagaríkasta tíma stríðsins, í janúar og febrúar árið 1940. Var greint frá erindi Rentolas í finnska dagblaðinu Helsingin Sanomat.
Samkvæmt upplýsingunum frá París voru Finnar í þann veginn að fá verulega hernaðaraðstoð frá Bretum og Frökkum í gegnum Svíþjóð og einnig kom fram, að Vesturveldin hygðust sprengja upp olíulindirnar í Baku í Kákasus. Þaðan fengu Sovétmenn 90% allrar hráolíu og meira en það af gasolíu.
Rentola segir, að Stalín hafi treyst í blindni á upplýsingarnar frá París en þá hafði önnur mikilvæg leyniþjónustumiðstöð, í London, verið lokuð í nokkra en örlagaríka mánuði. Ástæðan var sú, að Stalín treysti ekki upplýsingunum þaðan en þær stönguðust alveg á við það, sem kom frá París. Njósnararnir í London sögðu ekkert benda til, að Finnar fengju neinn stuðning, sem um munaði.
Fleiri slæmar fréttir
Rentola segir, að þetta hafi haft afgerandi áhrif á ákvarðanir Stalíns varðandi Finnland. Segir hann, að stóri dagurinn hafi verið 21. janúar 1940.
Þá um kvöldið hafði Stalín verið í Bolshoi-leikhúsinu en að því búnu settist hann niður með sínum nánustu samstarfsmönnum til að ræða Vetrarstríðið. Í fyrstu var hann mjög herskár, hafði stór orð um að mola mótspyrnu Finna, en síðan breyttist andrúmsloftið þegar fleiri slæmar fréttir bárust frá vígstöðvunum. Þá var tekin ákvörðun um huga að friðarsamningum við Finna og ríkisstjórn Risto Ryti.
"Hefði Stalín gefið sér meiri tíma, hefði hann líklega ekki þurft að auðmýkja sjálfan sig með því að taka upp viðræður við ríkisstjórn, sem var ekki til að hans sögn, og hafði að auki niðurlægt allan Rauða herinn. En nú lá honum á. Átta dögum síðar, 29. janúar, kom Moskvustjórnin þeim skilaboðum til sænsku stjórnarinnar, að í grundvallaratriðum væri ekkert í veginum fyrir friðarviðræðum við finnsku stjórnina," sagði Rentola.
Til að gera Finna fúsari til að fallast á friðarskilmála Sovétmanna skipaði Stalín fyrir um stórsókn, sem gekk mjög nærri finnska hernum. Á sama tíma bárust upplýsingarnar frá París um yfirvofandi stuðning vestrænna ríkja við Finna og Sovétstjórnin, sem hélt að tíminn væri að renna út, undirritaði friðarsamninga 13. mars.
Rentola segir, að daginn eftir eða 14. mars hafi Stalín fengið nýjar upplýsingar, sem sögðu, að fréttir um stuðning vestrænna ríkja við Finna væru miklar ýkjur.
"Þegar þessar upplýsingar bárust Moskvu eftir alls kyns krókaleiðum, var friðurinn dagsgamall. Vjatsjeslav Molotov, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, hafði undirritað hann deginum áður alveg skelfilega timbraður. Hann hafði verið að halda upp á fimmtugsafmælið sitt og setið að drykkju til klukkan sex um morguninn," sagði Rentola.
Treysti aðeins sjálfum sér
Rentola sagði, að þegar Stalín hefði ákveðið að semja frið við Finna hefði hann ekki treyst leyniþjónustuupplýsingunum einum. Hann hefði alltaf viljað hafa slíkar upplýsingar í "hráefnis"-formi og ekki treyst neinum öðrum til að greina þær og meta. "Slíkt getur gengið hjá alvitrum mönnum, öðrum ekki," sagði Rentola.
Að loknu Vetrarstríðinu átti Stalín langa fundi með yfirmönnum Rauða hersins og eins og ávallt, kenndi hann öðrum um, það er að segja njósnurunum. Fordæmdi hann þá fyrir að vera of saklausir og auðtrúa og sagði, að sannir njósnarar ættu að vera "gegnsósa af eitri og galli".

Wednesday, October 16, 2002
Wá! Mikið búið að gerast undanfarið!!
Stofnuðum Útivistarklúbb í gær... Mjög gaman og ágætis mæting. Við settum okkur markmið um að ganga meira og kynna svæðið betur fyrir þeim sem ekki þekkja, taka 7-tindana og fleira og fleira!! Fundargerðina má sjá hér. Í dag fórum við svo fyrstu rúntinn svona til að prufukeyra þetta, fórum á Grábrók og Rauðbrók og skoðuðum hlöðnu réttirnar sem standa við báðar "Brækurnar". Mjög skemmtileg ferð sem tók okkur um 1 1/2 tíma og mættu um 14 manns meðal annars japönsku skiptinemarnir.
Það sem skyggði á þetta var fáránlegt bréf sem barst í gærkvöldi frá gjaldkera Róðrarfélagsins. Leiðinlegt að svona skemmtileg og villt hugmynd skuli spillast með afbrigðilegu framferði stjórnarmanna. Þessi bréfaskrift kemur hins vegar ekki á óvart enda sérfræðingur hér á ferð. Með fáránlegum skrifum sínum og persónulegum árásum gerði hann sig endanlega að algjöru fífli frammi fyrir öðrum nemendum skólans, enn einu sinni!! Svona skrif eru varla svaraverð og eru í raun og veru hlægileg. Í þokkabót vill sá sami fá bréfið birt á vef Skólafélagsins en er ekki einu sinni félagi?!? Af hverju sendi hann þetta ekki bara á mbl.is eða Eimskip!! Hvers konar....
Furðulegt... Ég reyndar býst við því að þetta skaði félagið meira en annað, sem er leitt.
Sami maður sem búinn er að kasta skít í allar áttir á opinberum vettvangi vill svo að málið sé rætt á spjallvef Skólafélagsins!! Heheheee á þetta að vera brandari?!?!
Furðulegt að svona menn fari ekki bara í fjarnám fyrst allir og allt er ekki eins og honum hentar!! Vona bara innilega að félagar hans standi ekki að baki honum með þessar fáránlegu fullyrðingar.. Menn sem ekki geta stigið fram og beðist afsökunar á margítrekuðu fáránlegu og andfélagslegu framferði eru ekki svaraverðir og ber að taka ummæli þeirra ekki alvarlegra en orð götustráka og hrappa. Svo mörg voru þau orð!!

Eitt það svalasta sem ég hef séð lengi Phat Cycles USA. Eins gott að Visa kortið sé í frystinum maður...
Monday, October 14, 2002
Þetta er gaur fjögur!
Getur enn ekki ákveðið hvað eða hver hann er enda breytist síðan á hverjum degi!!
Ekki hleypa honum í tölvuna þína, það er ekki af ástæðulausu að hann er með horn og hala!!

Sunday, October 13, 2002
Var þetta einhverntíman spurning?!?!? Ferrari heimsmeistarar
Snillingar!!
Snillingar!!
Friday, October 11, 2002
Kaffihúsið var opnað í gær! Þvílík snilld að það sé loksins komið af stað! Ég kom seint og var því einn af fáum sem hélt sér edrú!!! Við fórum svo heim um eittleitið! Síðan vaknaði ég í morgun fárveikur. Kominn með pest dauðans, ælupest og allan pakkan!! Ógeð! Skrölti samnt í verkefnatíma, var netta að æla á tölvuna! Leit út fyrir að hafa drukkið mest af öllum!! Bömmer!
Annars var ég heima á Hvanneyri í gær að hjálp Sólveigu systur í hagfræði. Alltaf gaman að geta hjálpað fólki sem kann að meta það. Einar ,frændi, Guðfinnsson kom í heimsók, er að búa sig undir prófkjör og var því mikið að spyrja um stöðu manna í sveitinni! Gaman að ræða svona við hann, enda mikið frá að segja.
Jæja farinn aftur að æla........ öhjjjj...

Thursday, October 10, 2002
Á að vera að læra en lendi alltaf á einhverju helvítis surfi!! Var að finna heimasíðu 2.deildar í háskólaboltanum Háskóladeildinn
Spurning um að skora á meistarana til að spila um Góðgerðarskjöldinn á Bifröst Stadium!!

Wednesday, October 09, 2002
Síðan sem ég les meira en mbl.is, --- - --climbXmedia-- - ---
Subscribe to:
Posts (Atom)