Slagurinn búinn... í bili!
Prófin búin og þynkan eftir partýið á Astro að renna af manni!
Við erum byrjuð á Misserisverkefninu. "Hvert er samkeppnisumhverfi gagnaflutninga á Íslandi".
Þetta gengur bara ótrúlega vel og maður er þokkalega sáttur við verkefnið. nenni ekki að skrifa meira núna...
Wednesday, November 20, 2002
Þrjú búin og tvö eftir!! þetta er eins og í fangelsi!!
Annars gekk þetta bærilega í dag í tölfræði þrátt fyrir að lobbinn hafi ekki verið jafn fyrirsjáanlegur og oft áður!! Skil ekki af hverju er ekki bara spurt um efni nátengt verkefnunum!?!? Ef þessi kennsluaðferð, verkefni verkefni verkefni er málið, þá er augljóst að maður les ekki mikið bækurnar, í það minnst ekki jafn mikið og maður vildi!! Því ætti að prófa úr unnu efni og refsa farþegunum umfram allt!!
Þetta er s.s. búið að ganga bærilega en á morgun er þjóðhagfræði og svo viðskipta og rekstrarréttur...
Klifur:
Þeir sem hafa ekkert að gera og eru ekki að læra undir próf er bent á þetta, eins árs vinna að rætast!! Gaurinn búinn að vinna að því að klára þessa leið í heilt ár og loksins, loksins, tekst það!! Þolinmæði er dyggð!!
Áfram.... Við Agnes erum sest niður!! það er það mesta sem maður hefur gert í dag!! Nú á að taka á því!! Ég fór annars í snilldar göngutúr í dag, svona rétt til að anda að mér fersku lofti og hreyfa mig. Fórum nokkur saman í Jafnaskarðsskó við Heðarvatn, frábært!!

Monday, November 18, 2002
Fyrsta prófið búið!!
Markaðsfræði!! Gekk ágætlega en mun snúnara en maður bjóst við...
Neni ekki að skrifa meira en ef þér leiðist þá er þessi helvíti fín:007 - Die Another Day

Sunday, November 17, 2002
Maður ætti kannski að skella sér í þennan pakka!!
Kennedy tók að staðaldri verkjalyf, róandi lyf, örvandi lyf og svefntöflur. Einnig tók hann hormónalyf og jók skammtinn þegar álagið var mikið.

Saturday, November 16, 2002
Uppskeruhátíð
Já sumir kalla þetta helvíti uppskeruhátíð!! Þeir eru geðveikir!!
Prófavikan er að nálgast og við Agnes erum búin að vera innilokuð í 2 daga!! Þetta er að verða eins og gömul hryllingsmynd þar sem annar aðilinn snappar, og býr til kjötsúpu úr hinum!! Vonum að það fari ekki svoleiðis!! Sérstaklega þar sem mér finnst kjötsúpa vond og það yrði því líklega ég sem væri í pottinum....
Annars reynir maður svona aðeins að dreyfa huganum öðru hverju, renndi í gegnum Moggann áðan og fann grein í Misserisverkefnið okkar. Viðtal við framkvæmdastjóra LínuNets þar sem hann segir að Ísland sé í 10. sæti í fjarskiptamálum. Við ætlum að skrifa um samkeppnisumverfi gagnaflutninga á Íslandi.
Gæti orðið mjög skemmtilegt verkefni og dýpkað skilning manns, á þessu viðamikla og pólitíska efni, verulega. Mig dauðhlakkar til að klár prófin og byrja í missó!!
Þeir sem sakna Reykjavíkur geta huggað sig við þetta, sem ég fann á heimasíðu LínuNets. Jæja.... Læra!!

Friday, November 15, 2002
Jæja föstudagur!! Fínn tími í Áætlunargerð... Aðeins farinn að skilja í síðasta tíma, var reyndar að læra fyrir tímann í einhverja 6 tíma í gær!! Þetta er ekki alveg jafn einfalt og hann heldur. Annars voru Helga og Gísli í heimsókn!! Við Gísli spiluðum Grand Theft Auto í 11/2 tíma, aumur í þumlunum!! Ég er ótrúlega lélegur í tölvuleikjum enda takmarkaður áhugi!!! Reyndar er ég snillingur í PS2, rústa alltaf Arnari Gauta í Fifa 2002. Eins gott að Gísli skilji tölvuna ekki eftir þá mun ég skítfalla í prófunum!! Helga var með tískusýningu í tvo tíma, fá lánaða kjóla hjá Agnesi fyrir eithvað ball....
Arnar hringdi annars í mig í gær, frekar pirraður, þar sem ég gleymdi afmælisdeginum hans, leiðinlegt hvað maður hefur lítið samband í bæinn. Heyri reyndar töluvert í Gísla, tölumst saman á msn og svo bjallar hann í mig af því að hann er svo lélegur að pikka.
Það var Háskólaráðsfundur í dag. Skemmtilegur vetvangur, ótrúlega sterkt í háskóla að hafa möguleika á að hafa áhrif sem nemandi, furðulegt hve fáir vilja taka þátt.
Margt skemmtilegt tekið fyrir, sjá fundargerð.
Meira um það síðar...

Thursday, November 14, 2002
Hefði frekar átt að þegja með Sirkús Olla Smart þar sem ég gekk vbeint í flassið á honum áðan og var sendur í pottinn fyrir yfirlitsmyndatöku!! Ætli ég sé ekki svona fjarskafríður!! Ég mætti samt of seint og missti þar af leiðandi af myndatökunni!! heheheee þvílík snilld!! Komst því í pottinn og spjallaði við félagana, Hjálmar, Berta, Munda og Inga veiðimann.
Törnin byrjuð
Í gær vorum við í tölfræðiprófi hjá Lobba. Ótrúlegt en satt þá gekk mér ágætlega!! Vona að það gangi líka í lokaprófinu!!
Í dag vorum við svo í lögfræðiprófi. krossapróf mepð engin gögn!! Gekk bara vel! tvær villur, eina þeirra skil ég ekki ennþá!! Það má taka Kjarvalinn í fjárnámi en ekki sjónvarpið!! Er það af því að maður á tvö Kjarval?!?! Ekki eins og þau hafi sína sérstöðu!! Ég vildi nú frekar að sjónvarpið, örbylgjuofninn og 5 kassarnir mínir af geðlyfum yrðu tekin!!
Kastljósið er í heimsókn í dag!! Allt frekar svona uppstillt en gott P.R. sérstaklega eftir slaka framistöðu Guðfinnu rektors HR í Kastljósinu í gær.
Guðs lifandi feginn að þurfa ekki að taka þátt í sirkúsnum...

Wednesday, November 13, 2002
Ótrúlegt!! ;-) Einar að verða bæjarstjóri í Bolungarvík!! Sjá fréttir á Bæjarins Besta.
Til hamingju Einar!!
Til hamingju Einar!!
Tuesday, November 12, 2002
Já loksins!!
Viðskiptaháskólinn á Bifröst
Fáránlega orðað!! Ég er búinn að vera hæstánægður með fría ljósritun!!
Þetta er hundfúlt!! Nú þarf maður að fara að kaupa bækurnar!! ;-)

Þetta er svo ógeðslega fyndið!! Geir Ólafsson í Ítalíu!!
Iceblue - Geir Olafsson singer Fyrir miðri síðu kemur mynd af kappanum að faðma Fabio Capello og textinn sem hér fylgir: "Iceblue met the world famous soccer coach of A.S. Roma, Fabio Capello. Capello is now in the lead for coaching the English Soccer Team, after Keegan's resign."
N.B. Sven Göran Erikson er að þjálfa Enska landsliðið en hann þjálfaði áður erkifjendur Rómar, Lazio!!

Sunday, November 10, 2002
Fyrir þá sem nenna að horfa á videó!!
Boulder pakki (Grjótaglíma) og klifur pakki. Alvöru íþróttamenn og allt amatörar!!
Hvað með að opna klifursal á Bifröst!! Of kallt til að vera úti, snilldar háskólasport, 100% líkamleg þjálfun, kraftur, liðleiki og þol en líka 100% andleg þjálfun, mikil hugsun og útsjónarsemi. Maður gleynir algjörlega stund og stað og kemur 100% endurnærður að bókunum á eftir!!
Einnig væri hægt að skella upp ísklifurvegg þá væri hægt að klifra saman á köldum vetrarkvöldum í staðin fyrir að horfa á E.R(Hugmyndirnar vellta út!!). Nógur er kuldinn og eitthvað er til af veggjum!! Veggurinn fyrir ofan pottaaðstöðuna og strompurinn við endan á aðalsalnum!! ;-)
Jæja hættur að tauta!! viðskipta- og rekstrarréttur!!

Friday, November 08, 2002
Föstudagur á Bifröst
Föstudagar eru alltaf sérstök upplifun á Bifröst. Fáir mæta í fyrirlestra vegna þynku!! Aðrir reyna að troða sér sem fyrst í verkefnatíma til að komast sem fyrst í bæinn.
Ég hins vegar lít svo á eins og ég hef oft áður sagt að helgin sé ekki komin fyrr en seinnipart á föstudegi.
Í dag vorum við að vinna að markaðsverkefninu okkar um markaðssetningu á Kenmore eldhústækjum. Kvikyndislegt verkefni þar sem þetta er einn flatasti bransi á Íslandi.
Annars var mikið um að vera í dag. Úthlutun úr Félagsmálasjóð. Félagsmálasjóður er 750.000 kall á önn sem skólinn greiðir í félagsmál nemenda. Í dag var Skólafélagið að fara yfir umsóknir. Sótt var um 2,3 milljónir!!! hehehe...
Vona að þetta fari allt vel og held að við höfum náð að sinna flestum að einhverju leiti. Vonandi verða flestir ánægðir!! Það er nú samt varla líklegt!!
En úr einu í annað! Var að klára vinnunna í dag og skellti mér í pottinn!! Þvílík snilld þessi pottaaðstaða. Rektor sá til okkar og leit til okkar til að spjalla. Hann má eiga það að vera duglegur að spjalla og ræða málin. Hann staðfesti aftur að hann er að lesa bloggið okkar!! Ég er mjög ánægður með það!!
Annars erum við sest aftur niður að læra, erum boðin í mat til Elínar og Hlyns á eftir og því eins gott að koma einhverju í verk!! ...og ég að blogga og Agnes í símanum!!

Frekar fyndið!! Þeir sem eru á Bifröst verða að tékka á þessu!!!Meet Me at HOT or NOT. Verð samt að vita hver fann þessa mynd!! !!!Haukur sendi mér hana!! Ekki er hann að þvælast á "hot or not" allar nætur?? Eða hvað??
Thursday, November 07, 2002
Fallegur akitektúr á ÍslandiAmtsbókasafnið á Akureyri. Synd að ekki sé meira spáð í þessa hluti á Íslandi! Reyndar er nýja Skólahúsið okkar bara vel heppnað og lýsir þjóðfélagsandanum svolítið vel. Svona eins og gamla húsið gerir líka. Synd hve ljót heimavistin er!!
Hér er gott dæmi um flottan skóla! Arne Jacobsen teiknaði þennann!!!
Meira um arkitektúr síðar!!

Svakalega vont!! Maradonna orðinn ógeðslegur!!
Wednesday, November 06, 2002
Skemmtanir og verkefnaálag í ungmennafélagsanda
Vinnuálagið er að ganga af öllum dauðum, það var þó ákveðið í pottinum í gær að vilji væri fyrir auknu verkefnaálagi!!
Niðurstaða komin í könnunum skemmtanahaldi á Bifröst. Virðist vera þónokkur vilji fyrir skemmtunum á föstudögum, sem betur fer eru skoðanir manna mjög skiptar og sést að flestir velja já endilega eða nei alls ekki!
Annars er mikið búið að vera gerast hér á Bifröst undanfarna daga, í gær stofnuðum við Ungmennafélag! Já ungmenna félag árið 2002!!
Þetta var gert til að halda utan um íþrótta- og æskulýðsmál á svæðinu..... 260 manns skráðu sig í félagið! Við héldum svo stofnfund og fylltum Hriflu, nýja sal Viðskiptaháskólans!! Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra hélt ræðu (Rifjaði upp fáránlega ákvörðun ríkisvaldsins á sínum tíma með því að hafna Marconi í fjarskiptaútboði til og frá landinu) og nýstofnaður kór söng!! Klassískt en skemmtilegt!
Annars er maður varla til viðtals þessa dagana, allt of mikið að gera....
Mig langar líka að minnast á málstofu sem var hér í dag! Sturla samgöngumálaráðherra hélt ræðu um ferða- og samgöngumál!! Þvílíkt sjálfshól og blaður!! Aldrei á æfinni hef ég getað eyðilagt mann jafn auðveldlega og hann, enda skrifað tvö misserisverkefni um samgöngumál á Íslandi. Ræða full af bulli og sjálfshóli!! Hann fengi aldrei mitt atkvæði ef ég væri flokksbundinn!!!
Jæja!! Markaðsetja Kenmore á Íslandi er næst á dagskrá!!

Subscribe to:
Posts (Atom)