Missó, enn einu sinni!!
Jæja nú á aðfaranótt miðvikudags erum við að prenta út lokaskil!!
Skilum þremur eintökum inn til skólans og prentum svo öðruvísi skýrslu út fyrir okkur og fyrir þá sem við seljum skýrsluna... Farsæl lausn!!
Annars er þetta búinn að vera viðburðaríkur dagur! Óli tölva hringdi í morgun og sakaði hópinn okkar um stuldur og óafsakanlega framkomu...
...hann fann tölvuskjá úr gagnavinnslunni í vinnurýminu okkar, sem n.b. við skiluðum af okkur fyrir 10 dögum!! Bragi sendi svo skemmtilegt bréf þar sem við erum aftur sökuð um þjófnað og "Svona hegðan og framkoma er fullorðnu fólki í háskólasamfélagi algerlega ósæmandi. Ég get því ekki annað en beðið ykkur um að dauðskammast ykkar."
Þeta er s.s. af því að einhver fékk skjáinn úr gagnasmiðjunni lánaðan og skilaði honum ekki á réttan stað... pjúúú.. eins gott að passa sig á tölvu-löggunum!! Robo-cop, eða eins og við erum farin að kalla þá: Jónas og Ebbu.
Við reyndar fengum skjáinn lánaðann í tvo tíma á fimmtudeginum fyrir skil og gerðum grein fyrir "þjófnaðinum" með skilaboðum á tölvunni!!!
Maður endurtekur það ekki eftir þetta... Þið hin sem eruð samsek passið ykkur, þurkið fingraförin af vetvangi og standið saman!! Þið eruð í skítamálum!!
Heheheheee...
Annars vorum við á vörnum í dag og höfðum það flott, Einar Vald. stóð sig vel og var stilltur!! ;)
Annars eru jólin að nálgast og ég eftir að redda jólagjöf!! Hvað á að gefa konu sem á allt og einhverra hluta vegna vill ekki raftæki eða nytsamlega hluti til heimilisins!! hehehe...
Hóhó!!
Thursday, December 12, 2002
Missó búið 2 og viðvera á morgun
Jæja!! Maður er að rísa úr öskunni og kominn í eldinn.... Lögfræðiverkefni í viðveru á morgun. Ábyrgð farþega ölvaðs ökumans!! Hentar mér í Viðskiptafræði mjög vel!!
Ekki s.s. að þetta sé eitthvað stórmál en maður er ekki alveg í gírnum til að setjast yfir þetta mál núna!! En viðveruhópurinn í dag var þó mjög almennilegur og þakka ég það!! Ætlum að vera á rólegu nótunum á morgun enda óþarfi að viðvera sé eitthvað leiðinleg...
Svan er að fara á frumsýningu á TTT á eftir!! Bíð spenntur eftir fréttum.
Annars er fínt að vera í þessu núna, Einar er á kafi í prófum og maður er ansi feginn að vera búinn með það helvíti!!
Annars er ég á fullu að finna digitalvél til að kaupa fyrir jólin! Einhverjar hugmyndir? Er að spá í Canon líklega Powershot týpu.

jæja búinn í missó!!
Þvílík hörmung, aldrei á æfinni lent í jafn ömurlegum og leiðilegum ummælum um verk sem ég hef unnið!! Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, og Einar eitthvað, bókhaldskennari. N.B. þetta var fyrst og fremst markaðsfræðiverkefni. Verkefnið hefur fengið dúndurdóma í yfirlestri og maður var kannski orðinn of afslappaður!! En þetta!!! Vá! Eins og áður lögðum við mikið upp úr kynningunni, og þótti mörgum hún hafa heppnast þokkalega, þó svo að áðurnefndur Einar hafi líkt mér við Gunnar í Krossinum. Veit ekki hvort ég eigi að taka því sem móðgun eða hrósi!! Líklega hrósi þar sem maðurinn næra að draga með sér hundruð saklausra sauða!
Annars var verkefnið tæklað á ...-RITSKOÐAÐ-...
Hættur!! Borgar sig ekki að æsa sig yfir svona málum!! Eins og oft áður er þetta keppni í hepni!! ;)
BLESSS....

Wednesday, December 04, 2002
Missó
Jæja, lítið verið skrifað undanfarið. Við erum á kafi í misserisverkefnum. Minn hópur er að skrifa um samkeppnisumhverfi gagnaflutninga á Íslandi, mjög áhugavert efni sérstaklega með tilliti til einkavæðingar símans. Einnig gaman að sjá að aftur dettum við inn á mál sem er til umræðu á alþingi. Steingrímur J. Sigfússon lagði fram þingsályktunartillögu um breiðbandsvæðingu landsins. Þar kemur í ljós að það kostar um 1,5 milljarð að leggja nýtt ljósleiðaranet um landið, svo þarf að tengja það við öll heimilin. Dýrt en ekki svo vitlaus fjárfesting.
Annars er komin jólastemmning í hópinn, Aníta er komin í jólaspennitreyjuna, húsið hennar er að verða eins og jólahúsið við Bústaðarveg. Agnes að missa sig af því að hún finnur bara jólaskrautið sem ekki ert sett í samband!! heheheh wonder why?!?!
Annars var ég að fá sent jólalag frá Baggalút sem Móa frænka syngur!! Mjög fyndið, check it out: Baggalútur

Subscribe to:
Posts (Atom)