Tuesday, January 28, 2003
Monday, January 20, 2003
Hvað er krummi að gera í hr partýi??astro-29.jpg
Ótrúleg snilld, það sem fólki dettur í hug...Castaways Travel - Providing Clothing Optional / Nude Vacations & Cruises Worldwide. Túrisminn kominn á ystu nöf!!
Vá hvað það er kallt!!
Loksins kominn snjór og maður er farinn að dusta rykið skíðunum!! Fyrir þá sem ekkert vita en vilja læra þá bendi ég á www.telemarktips.com , "frelsaðu hælinn og hugurinn fylgir" eins og einhver snillingurinn sagði.
Annars er komið veðmál í gang hér í skólanum: Hvenær snappar Bragi? Gaurinn er að berjast við að snúa sólarhringnum við... Frekar fyndið!! Pulsur og mais kl 5.30 á morgnanna!! Ágóðinn rennur til stuðnings svefnlausra Varmlendinga sem eiga erfiða daga fyrir höndum. Bragi gengur um rífur hurðir af húnunum og horfir á Bold and the beautifull....
Er kominn með 80's á heilann eftir að hafa verið að hlusta á eitt svaðalegasta diskasafn sem ég hef komist í....
Bjössi (Björn Jakob) á ca. 2000 fjögurra diska söfn með 80's tónlist. Kajagoogoo og Europe... Svaðalega fyndið.

Tuesday, January 14, 2003
Skóli...
Nú er skólinn byrjaður aftur sem er ekkert nema gott mál!! Letin að drepa mann um jólin....
Við byrjum önnina á samþættingu þar sem allir í skólanum vinna saman að einhverjum verkefnum í litlum hópum. Verkefni þessarar annar er viðskiptaleikur, BSG. Þetta leit nú ekki vel út í byrjun en við nánari athugun er þetta nú ekki svo slæmt. Þetta er reyndar svona verkefni sem hentar excel nördum, mönnum eins og Bjössa og Hauki, menn sem lifa í ferköntuðum heimi, raða í fataskápinn eftir lit og í kryddskápinn eftir stafrófsröð.... Ekki alveg mín deild.
Skemmtanalífið er komið á fullt, en vegna einokunnar á aðstöðu til skemmtanahalds er lítið hægt að gera og fór svo þessa vikuna að "róðrarfélagið" ,sem áður hefur verið fjallað um, heldur ball í kvöld. 1000 kall inn. I'm not going!!!
Spurning um að redda sér bjór og chilla heima...
Skólafélagið er á fullu að skipuleggja Akureyrarferð þarnæstu helgi og svo Bifró eftir mánuð. Bifró er ótrúlega skemmtileg hefð þar sem misgóðir söngvarar keppa og svo er slegið upp í ball. Þetta er yfirleitt haldið á Hótel Borgarnesi. Þetta byrjar með partýum á herbergjunum svo er fínn matur og allir í sínu fínasta og svo hefst söngvakeppnin. Hver sveit er með sinn umboðsmann sem búinn er að plögga bandið sitt undir dulnefni alla vikuna og kynnir svo bandið áður en það stígur á stokk. Frábær hefð og mikil stemmning. ...og ömurlegir söngvarar.
Jólin voru annars góð. Agnes sleppti sér enn einu sinni í gjöfum til mín, gaf mér Cintamani buxur fyrirísklifrið og telemarkið. Í pakkann laumaði hún svo áritaðri bók eftir Vilhjálm Stefánsson, The friendly arctic. Ég fékk svo líka óhefðbundna ævisögu Ernest Hemmingway, maður er því búinn að sitja með með kúbverska kokkteila og lesa öll jólin. Ég fékk líka snilldar heyrnartól þannig að nú getur annað okkar lært á meðan hitt horfir á sjónvarpið og ég get lært í salnum út í skóla.
Svo keyptum við okkur digital vél í gegnum vini okkar í Hong Kong, fáránlega hagstæð verð. Við fengum okkur Canon Powershot A40, ódýra vél með flesta functiona. Mjög sáttur.... Nú þarf maður bara að koma upp myndavef.

Subscribe to:
Posts (Atom)