Saturday, March 29, 2003

Prófin að byrja!
Ein önn í vibót búin... furðulega hratt að líða. Nú er tveggja vikna próftörn framundan og svo missó.
Gærkvöldið var gott... Pálmi Pólverji kom í heimsókn og bauð upp á pizzu fyrir einn og rauðvín!! Við hlustuðum á ghetto rapp allt kvöldið en enduðum svo í dyllan, dave mathews band og neil young, þá var Finnbjörn Dyllan og Bjössi komnir yfir!! Hver man ekki eftir stórstjörnum á borð við Waren G og Funkdoobiest??
Jæja!! höldum áfram að læra!!

Friday, March 28, 2003

Bifröst er komið á pólitísk spjöld sögunnar. Einar Kristinn Guðfinnsson skrifar hér góðan pistil um stofnun Miðgarðs á Bifröst og um menntamál á landsbyggðinni.
Ágætis frasi um marketing!!

Thursday, March 27, 2003

Lærðu golf með því að hlusta á ekki neitt!!!Human Reprogramming : Mindwriter Subliminal Series. Ótrúlegt! ;-)
Ætli þeir eigi Lobbann á þessu formi!!??
Ótrúlegt!! Maður getur orðið betri í golfi með því að hlusta á ekki neitt!!Human Reprogramming : Mindwriter Subliminal Series.
Ætli þeir eigi Lobba á þessu formi?
Það er verið að nudda þessu inn!! Nú í fréttablaðinu... Heldur Jón Ásgeir með Liverpool??
Stríð....
Hvað er hægt að segja!! 8 dagar liðnir frá innrás USA í Írak...
Manni líður ekkert allt of vel þegar maður sest niður og spáir í málin!! Ég stend mig, friðar- og umhverfissinnan, af því að vera hliðhollur USA og vilja frekar taka afstöðu en að sitja hjá hlutlaus og ómarktækur. Að snúa baki í staðreyndirnar er líka erfitt. Var betri lausn til...?? Örugglega, en sú ákvörðun er liðin og allir vita að Saddam var ekkert að fylgja ákvörðunum SÞ. SÞ er því miður það sem hefur komið verst út úr þessu, trúverðugleiki þess er hruninn... Það að hafa neitunarvald í lýðræðisstofnun er náttúrulega rugl. Það sem skaðar líka þessa umræðu verulega er hversu óforskammaðir og tillitslausir Bush og Rumsfeld eru. Maður getur einhvernveginn ekki treyst eða trúað þessum mönnum. En gleymum ekki hörmungum stríðs, saklausum borgurum sem deyja, börnum! Gleymum ekki fjölskyldum hermannana sem missa ástvini fyrir pólitískar skoðanir þjóða sinna. Minnum okkur á það reglulega að stríð er ekki töff!!
sic.

Monday, March 24, 2003

Áhugaverð grein fyrir foreldra! Maður hafði ekki mikið spáð í þessa hlið málsins... Börn virðast taka stríð í beinni nærri sér.Cornell News: Talking to kids about war Greinin er skrifuð í Cornell University, New York.

Friday, March 21, 2003

Gott að byrja að blogga aftur vikunni fyrir próf!!
Nú er farið að lægja hér á Bifröst, VD og VL farin að læra fyrir próf! BS í viðskiptasiðferði og ritgerðasmíðum og frumgreinadeildin á kafi eins og alltaf.
Annars er nóg um að vera eins og alltaf!! SH verktakar á kaffihúsinu í gærkvöldi, stóðu sig eins og hetjur að vanda!! Á miðvikudaginn voru svo þrír atburðir samtímis og tel ég það vera jákvætt merki um að félagslíf innan skólans sé að blómstra. Guðni Landbúnaðarráðherra var með opinn fund og svo í matarboði SÍS manna (Sem NB eru komnir með nýja heimasíðu), Benni á Stað einn þekktasti hestamaður landsins var með kynningu hjá hestaklúbbnum og svo var ræðukeppni milli deilda. Ég var svo heppin að taka þátt í ræðukeppninni þar sem umræðuefnið var tilvist frumgreinadeildarinnar. VD var meðmælandi og fór svo að lokum að við unnum þrátt fyrir hetjulega baráttu VL. Þar fór Hrannar fremstur og talaði svo andstætt samvisku sinni að það var aðdáunarvert.Í verðlaun til bráðabirgða var Kjaftaskurinn, gamall farandbikar hér í sveitinni, en verið er að fjárfesta í nýjum bikar með hjálp Félagsmálasjóðs og á að gera málfundarkeppnir að reglulegum viðburðum.
Boltinn er einnig farinn að rúlla aftur og er spilað á vetraræfingarsvæðinu, hvíta perlan hefur greinilega tekið á því á æfingartímabilinu...
Svan sendi mér áhugaverðan link, ef ykkur leiðist, um McDonalds kaffimálið!!