Monday, February 28, 2011

Loksins frumkvæði á vefmiðlamarkaði, pælingar um þýðingu og áhrif

Nýtt útlit vefútgáfu Viðskiptablaðsins er komið í loftið á www.vb.is.
Óháð útlitslegu mati á síðunni eru þar tvær mjög áhugaverðar nýjungar.
Sú fyrri er innskráningin. Nokkrir íslenskir vefmiðlar eru loksins farnir að fikta við innskráningu notenda (mbl.is og ja.is). Á vb.is er þetta mjög skýrt og boðið upp á Google eða Facebook skráningu. Þessu ber að fagna þar sem bættar upplýsingar um notendur vefsins ættu bæði að bæta efnistök fyrir notendur sem og aðgengi viðeigandi auglýsinga.
Þar komum við að seinni þættinum sem er auglýsingastefna. Á vb.is er aðeins eitt auglýsingapláss! Þetta er mjög áhugaverð þróun og djörf. Það er ljóst að þessi miðill mun selja mun færri pláss með þessum hætti en plássið verður fyrir vikið mun áhugaverðari auglýsingakostur fyrir auglýsendur. Hér ríkir algjör friður.
Augljósa vandamálið er verðlagning, hvernig getur vefur staðið undir rekstrarkostnaði með svona fá pláss og munu auglýsendur verðmeta plássið rétt. Fáir auglýsendur rýna mikið meira í aðrar kennitölur en verð, fjölda birtinga og fjölda smella. Það væri gríðarlega áhugavert að sjá eftirtektarmælingar, þáttöku- og smellahlutföll. 
Hvers virði er þessi friður, annars vegar fyrir auglýsendur og hins vegar fyrir "brand value" Viðskiptablaðsins? Hvers virði er það fyrir viðskiptablað að það sé stílhreint og að þar séu fréttirnar í forgrunni en ekki í samkeppni við blikkandi vefborða? Tíminn mun leiða það í ljós.

Vb.is er í dag lítið lesinn vefur skv. opinberum mælingum Modernus, snertiverðið er því líklega mjög hátt. Hins vegar verður áhugavert að fylgjast með "fasteignaverðinu" á plássinu ef lesturinn eykst með nýjum vef og vonandi nýjum áherslum. Hvers virði er það að hafa svona einokun á auglýsingum á síðu? Ég efast ekki um að eftirtektin á þessu plássi er betri en á mörgum öðrum plássum.

Erlendis höfum við séð þessa aðferðafræði lengi sbr. http://www.nytimes.com/ og http://www.economist.com/ en þar er oftast lagt upp með að einungis einn auglýsandi sé á forsíðunni þann daginn og sitji þar með einn að allri umferð á síðuna. Hjá Vb.is eru margir auglýsendur í plássinu í einu sem minnkar aðeins virði friðarins að mínu mati. Það hefði verið virkilega gaman að sjá einn auglýsenda í plássi og metnaður lagður í að selja daga en ekki vikur. 

Stærðin á borðanum er áhugaverð, augljóst er að stærri borðar verða sífellt meira áberandi en það er þó einnig ljóst að íslenskur auglýsingamarkaður má illa við enn einni borðastærðinni.

Frábært framtak engu að síður, loksins erum við að sjá einhverja tilraunastarfsemi, hvort hún eigi eftir að borga sig fer þó klárlega fyrst og fremst eftir fjölda lesenda og verðmati auglýsenda.

Thursday, February 03, 2011

Fashion Icon Kenneth Cole's twitter fiasco, summary and pictures of the scenario


The Fashion Icon Kenneth Cole messed up on Twitter today. Once again we witness colossal mistake by brands/celebs on Social Media. Few hours after the tweet, Kenneth Cole sends out an excuse and a few hours after that he removes the tweet and sends out an apology via Facebook. Kudos to him for acknowledging the mistake and sending out an excuse but the harm was done, news travels fast on social media.
Thousands have picked up the tweet and forwarded it to the masses. To make bad thing worse, according to the Kenneth Cole Twitter account protocol this was his personal tweet (KC), no ghost tweeting here!
The scenario is summed up in the following pictures while KC has removed the original tweet.
The massive re-tweeting of the incident and the pace of the distribution can be seen via the following link bit.ly/eOgg0n