I'm currently working full time on my masters thesis. I've been struggling with the final research question within innovation in services and marketing but finally found my place with the subject: "Listening to the Consumer: Value for innovation and business development."
So I'm writing a massive Literature Review on Services, Innovation, Chronological history of marketing and "Listening". Finally I'll be interviewing some of the biggest brands in tourism in Iceland and some of my favourite innovative brands in tourism in Iceland.
Wednesday, May 18, 2011
Monday, May 16, 2011
Hefur breyting á eignarhaldi breytt lestri Eyjunnar?
Eftir að ég skrifaði stutan pistil um vefmiðla á villigötum þar sem ég fjallaði fyrst og fremst um borðastærðir kom fram ákveðin gagnrýni og spurningar vegna ummæla minna um Eyjuna. Það var því gaman að sjá Hjálmar hjá DataMarket taka upp svipaðan þráð á Facebook síðu sinni. Hann skellti auðvitað upp skýru grafi um stöðu Eyjunnar með tilliti til heimsókna unnið út frá gögnum Modernus. Ég tók mér það bersaleifi að vinna áfram með þetta graf. Bætti inn Pressunni, Menn.is og Bleikt.is sem allir eru í eigu sömu aðila. Ég setti einnig inn merki um jól, páska og sumarfrí til að skýra sveiflurnar betur og einnig setti ég inn dagsetninguna 9.febrúar þegar tilkynnt er um kaupin á Eyjunni. Það er líklega óvarlegt að segja að lestur Eyjunnar hafi hrunið, líklega verðum við að gefa henni aðeins lengri tíma en trendið eftir eigendaskiptin er ekki jákvætt. Merkilegast er þó að sjá stökkið sem Eyjan tekur eftir sumarfrí 2010 og hve lítið hún dalar með tilkomu bleikt.is og menn.is.
Takk Hjalli og Datamarket fyrir frábært gagnaaðgengi.
[Innskot frá höfundi 16.maí kl.01.35]
Kröftugar og skemmtilegar umræður hafa átt sér stað um þessa grein á Facebook síðu Hjalla.
Í því tilefni bætti ég við DV.is og ráðningu Þorfinns Ómarssonar sem ritstjóra 11.apríl 2010 (Þorfinnur hættir svo aftur í nóvember sama ár).
Breytingin á sér fyrst og fremst stað haustið 2010 þegar Pressan og DV.is vaxa gríðarlega hratt. Það er í raun og veru ekki fyrr en eftir jól sem Eyjan fer að haga sér óeðlilega miðað við sögulegar forsendur.
Stóra spurningin er þó líklega sú hvort það sé pláss á markaðnum fyrir bæði Pressuna og Eyjuna. Ritstjórnarþrautin er því sú hvort ekki sé hægt að stækka kökuna í heildarlestir með blöndu þessara fjögurra miðla og auka þannig dekkun. Það væri mjög áhugavert að geta búið til fjóra miðla með mjög ólíka lesendahópa og þannig getað sellt dekkun á afmarkaða markhópa eða mun stærri, allt í gegnum sama sölukerfið og dreifileiðir.
Takk Hjalli og Datamarket fyrir frábært gagnaaðgengi.
[Innskot frá höfundi 16.maí kl.01.35]
Kröftugar og skemmtilegar umræður hafa átt sér stað um þessa grein á Facebook síðu Hjalla.
Í því tilefni bætti ég við DV.is og ráðningu Þorfinns Ómarssonar sem ritstjóra 11.apríl 2010 (Þorfinnur hættir svo aftur í nóvember sama ár).
Breytingin á sér fyrst og fremst stað haustið 2010 þegar Pressan og DV.is vaxa gríðarlega hratt. Það er í raun og veru ekki fyrr en eftir jól sem Eyjan fer að haga sér óeðlilega miðað við sögulegar forsendur.
Thursday, May 12, 2011
Tony Hawk in Iceland - Social Media is Awesome
Early today, Tony Hawk (Skateboarding Legend), posted the photo above and a question on Twitter and Facebook: Where am I?
Many instantly knew this was Iceland and the Blue Lagoon.
The Icelandic Social Media scene caught the thread with @gommit , @rosastef the social media mastermind at the @bluelagoonIS leading the way. Atli Már (@atlimarg) a Radio show host from Keflavik was the fastest kid on the block when Tony was trying to go skating, down-town Reykjavík. Two hours later Atli watched the friendly superstar skate in our backyard.
These personal visits by Social Media Giants must have massive influence on Icelandic Tourism. Tony Hawk has just under 1 million fans on Facebook and 2.3 million fans on Twitter, so the reach is incredible on a "niche" group if one can call a group of 2.3 million niche. One month ago Crish Brogan (@chrisbrogan) another Social Media Superstar visited Iceland and the Blue Lagoon. Not with the same fan base as Tony Hawk but non the less highly influential in the social media world. Both of these visits where not paid in any way, the dialogue is pure and honest. This makes the stories authentic and believable and hopefully at the same time makes Iceland attractive to new guests.
Tony Hawk ripping the Brettafélag Reykjavíkur's skatepark!
Tony Hawk on WhoSay
#Ibeliveinthepowerofsocialmedia

What started it all |
Atli's comment right after his meeting with Tony Hawk |
| Icelandic Social Media |
| Chris Brogan Checks in |
| The finale, Tony Hawks adventure on Facebook |
Tony Hawk ripping the Brettafélag Reykjavíkur's skatepark!
Tony Hawk on WhoSay
#Ibeliveinthepowerofsocialmedia
Labels:
english,
iceland,
marketing,
social media,
tony hawk
Tuesday, May 10, 2011
Golfvöllurinn Glanni á Bifröst
Það eru ákveðin fríðindi að búa á stað eins og Bifröst. Ótrúleg náttúrufegurð, stutt á fjöll, fjallahjólagötur fyrir utan gluggann minn, hlý og góð sumur og þessi ótrúlegi golfvöllur hinu megin við götuna.
Labels:
Bifröst,
borgarfjörður,
Glanni,
golf,
Icelandic
Monday, May 09, 2011
Vefmiðlar á villgötum
![]() |
| by Oriolus |
Í fyrsta skipti í nokkur ár má sjá töluverðar sviptingar og nýliðun á vefmiðlamarkaði. Mbl.is ber þó enn höfuð og herðar yfir aðra miðla, Vísir.is liggur öruggur í öðru sæti, sérstaklega sýnist mér hann vera sterkur meðal yngra fólks. DV.is og Pressan eru búin að bæta sig mikið og banka á hælana á risunum tveimur. Breytt eignarhald á Eyjunni virðist hafa dregið úr þeim vígtennurnar en nýir vefir Pressunar, bleikt.is og menn.is hafa náð ótrúlegum árangri á stuttum tíma sama hvað fólki finnst um innihaldið. Upplýsingavefirnir ja.is og vedur.is eru alltaf mjög áberandi, ruv.is er með mjög stöðuga umferð og fótbolti.net heldur sterkum lesendahópi.
Því miður er einungis einn opinberi mælikvarðinn á heimsóknarfjölda, Módernus. Hann gefur þó nokkuð góða mynd af markaðnum þó svo að auðvitað væri æskilegt að hafa meiri fjölbreytni á þessum markaði.
Likt og með samræmdu vefmælingarnar hefur íslenskum vefmiðlum og vefhönnuðum gengið ótrúlega illa að vinna eftir sömu stöðlum hvað varðar auglýsingapláss. Fyrir hinn almenna neytenda skiptir þetta kanski ekki höfuðmáli en fyrir auglýsendur er þetta mikið hagsmunamál. Í dag þarf að hanna borða fyrir hvert einasta vefsvæði, hönnunarkostnaður er því of hár með tilliti til birtingarkostnaðs. Mögulega hjálpar þetta mbl.is við að halda samkeppninni fjarri því með þessu móti er ólíklegra að auglýsandi kaupi pláss á mörgum vefsvæðum. Þetta er hins vegar mjög bagalegt vilji auglýsendakaupandinn tala við þrengri markhópa, vilji hann einungis vera sýnilegur í mjög stuttan tíma en dekka sem flesta eða ef hann vill einfaldlega teppaleggja markaðinn. Þetta hindrar einnig alla heildsölu á vefborðum og aðgang erlendra fyrirtækja sem vinna að mestu í gegnum auglýsingamiðlanir eða miðlara eins og DoubleClick . Þess utan er þetta einfaldlega kjánalegt að vera með svona ótrúlegan fjölda borðastærða þegar hægt væri með einföldum hætti að samrýma stærðirnar. Á stærstu vefsvæðum landsins eru um 30 stærðir í boði. Til eru ágæt dæmi um samvinnu t.d. er 270x400 borðinn sem Vísir byrjaði með og Já.is og Pressan hafa tekið upp í kjölfarið. Eins er 500x100 borðinn sem MBL var með og Já.is tók upp. Versta dæmið er líklega VB.is sem veðjaði á einn borða en borðastærðin er greinilega valin af vefhönnuði en ekki markaðsmanni 384x384 pix (N.B. Undirritaður er mjög hrifinn af tilraun VB og fylgist náið með henni).
Í Bandaríkjunum hafa um 460 auglýsinga- og tæknifyrirtæki sem kaupa um 86% af öllum vefborðum í landinu, komið sér saman um staðla hvað varðar stærð vefborða auk þess að standa vörð um siðferðilegt og lagalegt umhverfi vefauglýsinga. Þetta fyrirbæri kallast The Interactive Advertising Bureau (IAB) og hefur starfað síðan 1996. Hér fyrir neðan gefur að sjá samantekinn lista yfir vefborðastærðir íslenskra vefmiðla og staðlaðar stærðir IAB. Þar sést svart á hvítu hve íslensku miðlarnir eru ósamhæfðir og einnig hve langt við erum frá alþjóðlegum stöðlum.
Allt skjalið má nálgast og skoða í Google Docs skjali á slóðinni http://bit.ly/k5W6py
Þrátt fyrir ákveðna staðlatregu undirritaðs þá hlýtur að vera komið að þeim tímapunkti að ÍMARK, SÍA, óvirk Samtök auglýsingakaupenda eða mögulega samtök sem stofnuð yrði meðal miðla og auglýsingakaupenda tækju sig saman og ynnu eftir einhverjum grunnstöðlum bæði hvað varðar stærð auglýsinga, samræmdar mælingar og eftirlit og jafnvel ýmis siðferðileg álitamál. IAB er með alþjóðlegar tengingar víða um heim og er til að mynda norski samnefnari ÍMARK með tengingu við IAB. Það væri því ekki óeðlileg þróun að flestir auglýsingafleitir á stærstu vefsvæðum landsins féllu undir alþjólega staðla.
P.S. Að lokum bendi ég þeim sem ekki þekkja til auglýsingaheildsala og -miðlara á stutt myndbrot frá DoubleClick sem skýrir aðkomu þeirra og breytta hugsun í kaupum á auglýsingum:

Vefmiðlar á villigötum by Bárður Örn Gunnarsson is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-NoDerivs 3.0 Unported License.
Labels:
advertising,
marketing,
vefauglýsingar
Subscribe to:
Posts (Atom)